Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Geðheilsuteymin okkar eru fimm. Geðheilsuteymi HH austur, suður og vestur, Geðheilsuteymi fjölskylduvernd, Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana og Geðheilsuteymi fangelsa.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi, Þroska- og hegðunarstöð, Göngudeild sóttvarna, Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.