
Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir að ráða skipulagsfulltrúa til starfa.
Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa nýtt starf á traustum grunni. Helstu verkefni eru samkvæmt skipulagslögum og samþykktum sveitarfélagsins hverju sinni á sviði skipulagsmála, samgöngu- og umhverfismála.
Starfssvið
- Yfirumsjón með skipulagsmálum í sveitarfélaginu.
- Ábyrgð á að framfylgja stefnu sveitarfélagsins í málaflokkum sem undir hann heyra.
- Framkvæmd skipulagsmála og ráðgjöf við m.a. íbúa, kjörna fulltrúa, hönnuði og verktaka um skipulagsmál.
- Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar.
- Undirbúningur og eftirfylgni funda nefnda sveitarfélagsins varðandi skipulagsmál.
- Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar sem sinna verkefnum á sviði skipulagsmála.
- Önnur verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði byggingarmála skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Þekking og reynsla á þeim málaflokkum sem falla undir sviðið skilyrði.
- Þekking og reynsla af stjórnun og áætlanagerð æskileg.
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg.
- Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs og samskiptahæfileikar.
- Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti
Umsókn
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 2. desember 2019
Sveitarfélagið Skagafjörður er sveitarfélag á Norðurlandi vestra. Sveitarfélagið varð til 6. júní 1998 við sameiningu 11 sveitarfélaga í Skagafirði.
Í Skagafjirði búa um 4200 manns í fjölskylduvænu og lifandi samfélagi. Þjónusta við íbúa er öflug og í sveitarfélaginu eru góðir skólar á öllum skólastigum, allt frá leikskólum upp í háskóla. Íþrótta- og félagsstarf er blómlegt og allar aðstæður til hvers konar íþróttaiðkunar og útiveru. Atvinnulífið í Skagafirði er kröftugt og fjölbreytt þar sem matvælavinnsla af ýmsu tagi skipar stóran sess í tengslum við fjölbreyttan landbúnað og öfluga fiskvinnslu, auk iðnaðar, ferðaþjónustu og annarar þjónustu á vegum fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Menningarlíf er blómlegt í héraðinu og sagan við hvert fótmál.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á radningar.capacent.is.