Nú fjölgum við rýmum á HSS!
Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði til að mæta þessum vanda.
Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp og taka þátt í þessu spennandi verkefni með okkur.
Við óskum eftir að ráða starfsmenn í aðhlynningu. Unnið er í vaktavinnu, starfshlutfall er samkomulag, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Starf í aðhlynningu er bæði fjölbreytt og krefjandi. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Suðurnesja hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Vigdís Elísdóttir
–
[email protected]
–
4220500
Hjúkrunarfræðingar/nemar í sumarafleysingar í heimahjúkrun á Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í heimahjúkrun sumarafleysingar. Ráðningartími...
Sækja um starfSumarafleysingar 2023 – Hjúkrunarfræðingur á Hvammstanga Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga á öldrunardeildina á Hvammstanga....
Sækja um starfStarfsfólk í aðhlynningu – sumarafleysingar Við leitum eftir fólki í aðhlynningu til að leysa af í sumar á hjúkrunarheimilinu Tjörn...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur/nemi – Eskifjörður – Hjúkrunarheimilið Hulduhlíð – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarfræðinema í...
Sækja um starfStarfsmaður í eldhúsi Lausar eru til umsóknar tvær 80-100% stöður starfsmanna í eldhúsi við Sjúkrahúsið á Akureyri. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna. ...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starf