Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann í eldhús Hjúkrunarheimilisins Hulduhlíð í sumarafleysingu. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi.
Fjölbreytt störf í eldhúsi.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Járnbrá Hrund Gylfadóttir
–
[email protected]
Margrét Helga Ívarsdóttir
–
[email protected]
Aðstoðarmaður í eldhúsi – Neskaupstaður – Umdæmissjúkrahús Austurlands – SUMARAFLEYSING 2023 HSA óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingar í...
Sækja um starfHjúkrunarnemar í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir að ráða hjúkrunarnema í sumarafleysingar á hjúkrunar- og...
Sækja um starfMóttökuritari í sumarafleysingar á HSN Dalvík Heilbrigðisstofnun Norðurlands Dalvík óskar eftir móttökuritara í sumarafleysingu. Helstu verkefni og ábyrgð Móttaka, tímabókun,...
Sækja um starfMóttökuritari – sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að jákvæðum og sjálfstæðum einstakling til sumarafleysinga í móttökunni á Ísafirði. Um er að...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur á Sjúkradeild – sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga frá 1. júní 2023, eða...
Sækja um starfSumarafleysing myndgreiningadeild – Aðstoðarmaður Vegna sumarafleysinga er laus til umsóknar staða aðstoðarmanns við myndgreiningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti yfirmaður er...
Sækja um starf