HSA óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 40% eða eftir samkomulagi. Unnið er á vöktum og gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Aðhlynning og tilfallandi störf á hjúkrunardeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er -40%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Anna Sigríður Þórðardóttir
–
[email protected]
Borghildur F. Kristjánsdóttir
–
[email protected]
Móttökuritari – sumarafleysing á Höfn í Hornafirði Laust er til umsóknar starf móttökuritara í 5 vikur í sumar á Heilbrigðisstofnun...
Sækja um starfTveir hjúkrunarfræðingar á skurðstofu 60-100% starf Leitum að tveimur einstaklingum með íslenskt hjúkrunarleyfi og reynslu. Leyfi í skurðhjúkrun æskilegt. Önnur...
Sækja um starfSérnámslæknar í heimilislækningum – Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Lausar eru til umsóknar sex sérnámsstöður í heimilislækningum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sérnámsstöðurnar veitast frá...
Sækja um starfSérnám í heilsugæsluhjúkrun Lausar eru til umsóknar 5 sérnámsstöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæsluhjúkrun við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Hver sérnámsstaða er 80%...
Sækja um starfSumarafleysingar 2023 – Hjúkrunarfræðingur í Stykkishólmi Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga á hjúkrunar og sjúkradeild...
Sækja um starfTalmeinafræðingur óskast á Landspítala Talmeinafræðingur óskast til starfa við talmeinaþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 60% og þarf viðkomandiað geta hafið störf...
Sækja um starf