HSA óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80% eða eftir samkomulagi. Unnið er á vöktum og gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Aðhlynning og tilfallandi störf á hjúkrunardeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er -80%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Anna Sigríður Þórðardóttir
–
[email protected]
Borghildur F. Kristjánsdóttir
–
[email protected]
Sjúkraliðar í sumarafleysingar á HSN Siglufirði Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði (HSN) óskar eftir sjúkraliðum í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall er...
Sækja um starfStarfsmaður í eldhúsi Lausar eru til umsóknar tvær 80-100% stöður starfsmanna í eldhúsi við Sjúkrahúsið á Akureyri. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna. ...
Sækja um starfTalmeinafræðingur óskast á Landspítala Talmeinafræðingur óskast til starfa við talmeinaþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 60% og þarf viðkomandiað geta hafið störf...
Sækja um starfFélagsráðgjafi Við leitum að framúrskarandi félagsráðgjafa til að ganga til liðs við okkur á Landspítalanum. Um er að ræða 3...
Sækja um starfStarfsmaður – Blóðbankinn Snorrabraut Starfsmaður óskast til starfa hjá Blóðbankanum við Snorrabraut. Um er að ræða fjölbreytt starf við öflun...
Sækja um starfSjúkraliði / sjúkraliðanemi óskast í sumarafleysingar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Vestmannaeyjum sumarið 2023 Sjúkraliði / sjúkraliðanemi óskast í sumarafleysingar á...
Sækja um starf