Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkruna á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80 – 100% eða samkvæmt samkomulagi. Vaktavinna. Gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Almenn aðhlynning og tilfallandi störf á sjúkradeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Reynsla af aðhlynningu er kostur. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Þórhalla Ágústsdóttir
–
[email protected]
–
470-1453
Sigríður Kristinsdóttir
–
[email protected]
–
471-1453 / 864-0239
Afleysing – Sjúkraþjálfari á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Lýsing – inngangur Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa. Um er...
Sækja um starfSumarafleysingar á skurðlækningadeild SAk – Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður sjúkraliða og/eða sjúkraliðanema við skurðlækningadeild Sjúkrahússins á...
Sækja um starfSumarafleysing – ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Sumarafleysing – ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnejsa Við óskum eftir að ráða ljósmóður í sumarafleysingar...
Sækja um starfHjúkrunardeildarstjóri HERU Við leitum eftir öflugum leiðtoga til að leiða starfsemi HERU sérhæfðar líknarheimaþjónustu Landspítala í Kópavogi í nánu samstarfi...
Sækja um starfSumarstörf 2023 – Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi – Geðþjónusta Hér geta einstaklingar sem hafa áhuga á starfi ráðgjafa/ stuðningsfulltrúa hjá geðþjónustu Landspítala...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur/nemi – Eskifjörður – Hjúkrunarheimilið Hulduhlíð – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarfræðinema í...
Sækja um starf