Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í mötuneytiseldhús HSA á Egilsstöðum í sumarafleysingu. Unnið er á virkum dögum og aðra hverja helgi í dagvinnu. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi.
Um er að ræða matseld fyrir sjúkrahúsið og umsjón með vöktum.
Viðkomandi þarf að geta eldað. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir
–
[email protected]
–
470-3029
Vilmundína L Kristjánsdóttir
–
[email protected]
–
470-3000
Sjúkraliði við heimahjúkrun – sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða sjúkraliða í sumarafleysingu á heimahjúkrunardeild á Ísafirði. Helstu...
Sækja um starfStarfsmaður í býtibúr – Neskaupstaður – Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands – SUMARAFLEYSING 2023 Starfsmaður óskast í sumarafleysingu fyrir býtibúr sjúkradeildar Umdæmissjúkrahúss...
Sækja um starfStarfsfólk í aðhlynningu í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir starfsfólki við aðhlynningu á hjúkrunardeildir í...
Sækja um starfMóttökuritari – Djúpivogur/Breiðdalsvík – Heilsugæsla – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu júlí til...
Sækja um starfStarfsfólk í þvottahús í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir starfsfólki í þvottahús í sumarafleysingar. Helstu...
Sækja um starfSumarafleysingar lyflækningadeild – Deildarritari og aðstoðarmaður Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar staða deildarritara og aðstoðarmanns við lyflækningadeild Sjúkrahússins á...
Sækja um starf