Heilbrigðisstofnun Austurlands auglýsir lausa til umsóknar eina sérnámsstöðu hjúkrunarfræðings í heilsugæsluhjúkrun. Sérnámsstaðan er 80% og veitist frá 1. ágúst 2023 til eins árs.
Um er að ræða sérnám í heilsugæsluhjúkrun í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Námið samanstendur af fræðilegu námi við Háskólann á Akureyri og klínískri þjálfun á heilsugæslustöð hjá HSA undir handleiðslu lærimeistara. Námið er skipulagt til eins árs og lýkur með diplóma gráðu.
Almennt hjúkrunarleyfi, BS gráða (lágmarkseinkunn 7). Viðkomandi sé starfandi á heilsugæslustöð. Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi. Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði. Markmið sérnáms: – Efla hæfni hjúkrunarfræðinga, meðal annars í þverfaglegu samstarfi á heilsugæslustöð. – Móta viðhorf og sýn til þjónustu heilsugæslunnar í komandi framtíð. – Veita nemendum tækifæri til að rýna í og innleiða gagnreynda starfshætti í daglegu starfi undir handleiðslu lærimeistara á heilsugæslustöð.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um hjúkrunarmenntun ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2023
Nína Hrönn Gunnarsdóttir
–
[email protected]
Þórarna Gró Friðjónsdóttir
–
[email protected]
Hjúkrunarfræðingur – Djúpivogur/Breiðdalsvík – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingu júlí til ágúst á heilsugæslu...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing á göngudeild húð- og kynsjúkdóma í...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Fjarðabyggð – Heilsugæsla – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingar í heilsugæslu...
Sækja um starfSumarafleysing móttökuritara Stykkishólmi Starfsmaður óskast til sumarafleysinga í móttöku Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Starfshlutfall er 80-100% – eftir samkomulagi. Tímabilið sem um...
Sækja um starfAðhlynning Nú fjölgum við rýmum á HSS! Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði til að...
Sækja um starfSálfræðingur fullorðinna – Heilsubrú Erum við að leita af þér? Heilsubrú leitar að sálfræðingi í 100% tímabundið starf til eins...
Sækja um starf