Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og framsýnum einstaklingi í stöðu deildarstjóra í upplýsingatæknideild. Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða en upplýsingatæknideild heyrir undir fjármála- og upplýsingatæknisvið.
Upplýsingatæknideild sinnir þjónustu þvert á embættið, svo sem notendaþjónustu, innkaup og uppsetningu tölvubúnaðar auk þess sem deildin veitir almenna stjórnendaráðgjöf í upplýsingatæknimálum og tekur virkan þátt í ferlaumbótum hjá stofnuninni. Við leitum að deildarstjóra með fjölbreytta þekkingu sem gagnast í að tryggja farsæla þekkingarstjórnun við nýliðun í upplýsingatæknideild á næstu misserum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 430 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.
Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.
Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf við fyrsta tækifæri eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin.
Umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum, sem settar eru samkvæmt heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Pétur Jónasson
–
[email protected]
–
444-1000
Sigríður Gisela Stefánsdóttir
–
[email protected]
–
444-1000
Skrifstofustjóri menningar og fjölmiðla Laust er til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu menningar og fjölmiðla í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Ráðuneytið...
Sækja um starfEmbætti rektors Menntaskólans í Reykjavík Menntaskólinn í Reykjavík er hefðbundinn bóknámsskóli með bekkjarkerfi. Skólinn býður upp á nám á tveimur...
Sækja um starfEmbætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri Menntaskólinn á Akureyri er hefðbundinn bóknámsskóli með bekkjakerfi en náminu er þó skipt í áfanga...
Sækja um starfForstöðulæknir bæklunarskurðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar staða forstöðulæknis bæklunarskurðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri. Staðan veitist frá...
Sækja um starfDeildarstjóri óskast til starfa á Sjúkra- og göngudeild HSU í Vestmannaeyjum HSU leitar eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi sem vill takast á...
Sækja um starfFjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir að ráða aðstoðarskólameistara (2023) Fjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir að ráða aðstoðarskólameistara til fimm ára...
Sækja um starf