
Forritari í viðskiptagreind
Össur leitar að forritara til starfa í vöruhúsateymi. Viðkomandi þarf að hafa mikinn áhuga á viðskiptagreind (BI), vera sjálfstæður og jákvæður og geta unnið náið að greiningu, ráðgjöf og útfærslum á lausnum tengdum viðskiptagreind með viðskiptavinum. Össur er framsækið fyrirtæki á sviði stofngagna og gagnagreininga. Starfsfólk og stjórnendur fyrirtækisins um allan heim nota vöruhúsagögn daglega um Power BI og kubba sem vöruhúsateymið ber ábyrgð á.
STARFSSVIÐ
• Viðhald og hönnun á stofngögnum og vöruhúsagögnum
• Viðhald og hönnun á framsetningu viðskiptaupplýsinga (skýrslur og mælaborð)
• Forritun í Microsoft Business Intelligence umhverfi á borð við T-SQL, TimeXtender, Power BI, Microsoft Integration Services og Microsoft Analysis Services
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólamenntun/reynsla á sviði viðskiptagreindar sem nýtist í starfi
• Reynsla af SQL skilyrði
• Þekking á uppbyggingu vöruhúsagagna
• Góður skilningur á stofngögnum og gagnaskilum
• Þekking á Python/R, Business Analytics og uppbyggingu mælaborða er kostur
• Mjög góð enskukunnátta
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2018.
Sótt er um starfið á vef Össurar.
Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild í síma 515 1300.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á ossur.wd3.myworkdayjobs.com.