Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og eflingu mannauðs til að leiða starfsemi geðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða hæfni í mannlegum samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Forstöðulæknir hefur yfirumsjón með geðlækningum og er leiðandi um fagleg málefni og stefnumótandi í greininni á sjúkrahúsinu.
Forstöðulæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er Ragnheiður Halldórsdóttir framkvæmdastjóri. Um er að ræða 100% stöðu og er staðan laus frá 1. maí 2023 eða eftir samkomulagi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.04.2023
Ragnheiður Halldórsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Sérfræðingur í lífefnaerfðafræði Laust er til umsóknar starf sérfræðings í lífefnaerfðafræði við erfða-sameindalæknisfræðideild (ESD) á klínískri rannsóknaþjónustu Landspítala. Á ESD...
Sækja um starfSpennandi tækifæri í sumar fyrir aðstoðarlyfjafræðing eða lyfjafræðing Lyfjaþjónusta Landspítala óskar eftir að ráða lyfjafræðing eða lyfjafræðinema sem hefur klárað...
Sækja um starfSumarafleysingar 2023 – Hjúkrunarfræðingur í Stykkishólmi Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga á hjúkrunar og sjúkradeild...
Sækja um starfLæknar í sumarafleysingar á HSN Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri óskar eftir að ráða lækna í sumarafleysingar. Ráðningartími er frá...
Sækja um starfGeislafræðingur óskast í sumarafleysingu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að geislafræðingi til starfa í sumarafleysingu við stofnunina. Um...
Sækja um starfTeymisstjóri – Heimahjúkrun HH Vilt þú taka þátt í spennandi uppbyggingastarfi? Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir hjúkrunarfræðingi í 100% ótímabundið starf...
Sækja um starf