
Hafið Spönginni óskar eftir tveimur starfsmönnum
Hafið, Fiskverslun í Spönginni (Grafarvogi), leitar að starfsfólki í 2 stöðugildi.
Annars vegar 100% starf og hinsvegar 50% starf.
- Starfsmaður í 100% starfshlutfalli sér um að útbúa fiskrétti, fylla á fiskborð ásamt afgreiðslu.
- Einnig sinnir starfsmaðurinn tiltekt og öðrum tilfallandi verkefnum sem tengjast fiskversluninni.
- Vinnutími frá sirka 10/11-18/19
- Starfsmaður í 50% starfshlutfalli sér um að afgreiða, fylla á fisk og fiskrétti úr verslun ásamt öðrum vörum sem eru til sölu hjá okkur. Halda versluninni hreinni og sjá um að varan sé fallega framsett ásamt áfyllingum.
- Vinnutími frá sirka 15-19
Starfskröfur:
- Einstaklingurinn þarf að vera hress og skemmtilegur með góða þjónustulund.
- Reyklaus, stundvís og ábyrgur. Góð íslenskunnátta er nauðsynleg.
- Reynsla af meðhöndlun og þekkingu á fiskafurðum æskileg.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu