
Hjúkrunarfræðingur óskast á heila-, tauga- og bæklunarskurðdeild
Á heila-, tauga- og bæklunarskurðdeild B6 í Fossvogi starfar kraftmikill hópur fólks í þverfaglegu teymi og sinna sjúklingum eftir aðgerð á heila, mænu og taugum auk þjónustu við sjúklinga með stoðkerfisvandamál og eftir liðskiptaaðgerðir. Deildin er 14 rúma bráðalegudeild með 4 rúma hágæslueiningu fyrir heila- og taugaskurðsjúklinga. Góður starfsandi ríkir á deildinni sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun. Gildi deildarinnar eru hæfni, húmor og heiðarleiki.
Verkefnin eru fjölbreytt og tækifæri til starfsþróunar mikil. Lögð er áhersla á einstaklingsbundna aðlögun. Starfshlutfall er samkomulag og er starfið laust frá 1. janúar 2021 eða eftir nánara samkomulagi.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala (sjá myndskeið undir frekari upplýsingar).
» Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur Landspítala
» Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
» Taka þátt öflugri í þverfaglegri teymisvinnu
» Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
» Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
» Hæfni og geta til að vinna í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á radningarkerfi.orri.is.