
Hjúkrunarfræðingur óskast á skilunardeild
Deildin sinnir einstaklingum með langvarandi eða tímabundna nýrnabilun (blóð- og kviðskilun), auk blóðvatnsskipta. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sinni bakvöktum eftir að þjálfun lýkur. Á deildinni starfa um 35 manns í þverfaglegu teymi og góðu starfsumhverfi. Deildin er opin frá kl. 8-20 virka daga og frá kl. 8-16 um helgar. Unnið er á tvískiptum vöktum frá kl. 8-16 eða kl. 12-20, auk þess að bakvakt er annan tíma sólarhringsins. Ráðið er í störfin frá 1. maí 2021 eða eftir samkomulagi.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala (sjá myndskeið undir frekari upplýsingar).
» Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda þeirra
» Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur Landspítala
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
» Faglegur metnaður
» Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
» Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
» Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á radningarkerfi.orri.is.