Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og eflingu mannauðs til að leiða starfsemi öldrunarlækningardeild A á Landakoti. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Deildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni og stýrir daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni innan deildarinnar.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri öldrunar- og endurhæfingarþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 01.05.2023 eða eftir nánara samkomulagi.
Öldrunarlækningardeild A er ætluð skjólstæðingum sem þurfa á frekari endurhæfingu að halda eftir bráð veikindi. Skjólstæðingar koma frá flestum bráðadeildum spítalans. Markmið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og /eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra.
Á deildinni starfa um 50 manns í þverfaglegu teymi góður starfsandi ríkir á deildinni sem og mikill faglegur metnaður. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Hjúkrunarfræðingur
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.04.2023
Guðný Valgeirsdóttir, Framkvæmdastjóri
–
[email protected]
Ljósmæður sumarafleysingar – Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir ljósmæðrum í sumarafleysingar. Um er að ræða störf á tímabilinu júní-ágúst....
Sækja um starfLæknanemar í sumarafleysingar á HSN Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri auglýsir eftir læknanemum í sumarafleysingar. Ráðningartími er frá 1. júní...
Sækja um starfDeildarlæknir Akranesi Deildarlæknir óskast til starfa á handlækningadeild og slysadeild á Akranesi. Handlækningadeildin er nýuppgerð 14 rúma deild. Á Akranesi...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á taugalækningadeild Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast til starfa á taugalækningadeild í Fossvogi. Í...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar á sjúkrasvið Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu? Framundan er mikil uppbygging á HSS og...
Sækja um starfLyfjafræðingur – Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar 80% staða lyfjafræðings í sjúkrahúsapóteki Sjúkrahússins á Akureyri. Um framtíðarstarf er...
Sækja um starf