Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinema/sjúkraliðanema í sumarafleysingar í heimahjúkrun við heilsugæslu Egilsstaða. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Vaktavinna.
Starfið felst í heimahjúkrun skjólstæðinga.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Guðbjörg Björnsdóttir
–
[email protected]
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir
–
[email protected]
Hjúkrunardeildarstjóri taugalækningadeildar Laus er til umsóknar staða deildarstjóra á taugalækningadeild. Starfshlutfall er 100% og er starfið veitt frá 1. mars...
Sækja um starfSérfræðingur í heimilislækningum – Heilsugæslan Garðabæ Laust er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Garðabæ. Viðkomandi þarf...
Sækja um starfIðjuþjálfi í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) auglýsir eftir iðjuþjálfa í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall samkvæmt samkomulagi. Helstu...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur óskast á göngudeild bæklunarskurðlækninga Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á göngudeild bæklunarskurðlækninga í Fossvogi. Deildin er göngudeild (fyrrum endurkomudeild BMT)...
Sækja um starfDeildarstjóri óskast til starfa á stórglæsilegt nýtt hjúkrunarheimili á HSU Selfossi Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að kraftmiklum leiðtoga í stöðu deildarstjóra...
Sækja um starfSjúkraliðar í sumarafleysingar á HSN Siglufirði Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði (HSN) óskar eftir sjúkraliðum í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall er...
Sækja um starf