Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp og byggja upp öfluga teymisvinnu sem eykur þjónustu við skjólstæðinga heilsugæslunar.
Um er að ræða 80-100% starf í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Starfsemi á heilsugæslunni í Reykjanesbæ er fjölbreytt. Læknamóttaka, hjúkrunarmóttaka, skólahjúkrun, ung- og smábarnavernd og heilsueflandi móttaka. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar. Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Andrea Klara Hauksdóttir
–
[email protected]
–
4220500
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar skurðlækninga Við leitum eftir kraftmiklum hjúkrunardeildarstjóra og leiðtoga til að leiða og efla áfram starfsemi göngudeildar skurðlækninga í Fossvogi og...
Sækja um starfSumarafleysing – Sjúkraþjálfari/sjúkraþjálfanemi við Sjúkrahúsið á Akureyri Vegna sumarafleysinga er laus staða sjúkraþjálfara og/eða sjúkraþjálfanema við Sjúkrahúsið á Akureyri. Faglegur...
Sækja um starfSumarstörf 2023 – Almenn störf í þvottahúsi og vöruhúsi Við leitum eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum til starfa í þvottahús...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur-Göngudeild innkirtla-og gigtarsjúkdóma Göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa með áherslu á starf innan sérhæfðra...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar óskast á Móberg hjúkrunarheimili HSU á Selfossi Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar óskast til starfa á glænýtt hjúkrunarheimili, Móberg,...
Sækja um starf