Nú fjölgum við rýmum á HSS!
Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði til að mæta þessum vanda.
Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp og taka þátt í þessu spennandi verkefni með okkur.
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga í vaktavinnu, starfshlutfall er samkomulag, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Störf hjúkrunarfræðinga eru bæði fjölbreytt og krefjandi. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar. Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Vigdís Elísdóttir
–
[email protected]
Hjúkrunarfræðingur – Blóðbankinn Snorrabraut Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Blóðbankanum við Snorrabraut. Við bjóðum jafn velkominn í okkar góða hóp...
Sækja um starfRáðgjafi/ stuðningsfulltrúi á Laugarásnum meðferðargeðdeild Áhugasamur og metnaðarfullur ráðgjafi/stuðningsfulltrúi óskast til starfa á Laugarásnum meðferðargeðdeild í geðþjónustu Landspítala. Laugarásinn er...
Sækja um starfSjúkraliði – Eskifjörður – Hjúkrunarheimilið Hulduhlíð – SUMARAFLEYSINGAR 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða í sumarafleysingu sjúkraliða á...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfHáskólamenntaður einstaklingur á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda á göngudeild svefntengdra sjúkdóma Ertu háskólamenntaður einstaklingur á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda sem...
Sækja um starfKlínískur yfirnæringarfræðingur við Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar 100% staða næringarfræðings (möguleiki á lægra starfshlutfalli eftir samkomulagi) við...
Sækja um starf