Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Við óskum eftir að ráða hjúkunarfræðing til að slást í okkar frábæra hóp og byggja upp öfluga teymisvinnu sem eykur þjónustu við skjólstæðinga heilsugæslunar í Grindavik. Um er að ræða 60% – 80% starf í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Starfsemi á heilsugæslunni í Grindavík er fjölbreytt og krefjandi. Læknamóttaka, hjúkrunarmóttaka, skólahjúkrun, ung- og smábarnavernd, ásamt heilsueflandi móttökum. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
Hjúkrunarfræðingurinn er leiðandi í starfi, framþróun, umbótum og mótun liðsheildar. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar. Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 60-80%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Laufey Sæunn Birgisdóttir
–
[email protected]
Sérfræðingur í klínískri sálfræði – Sálfræðiþjónusta geðsviðs Sálfræðiþjónusta Landspítala vill ráða til starfa 5 sérfræðinga í klínískri sálfræði við sálfræðiþjónustu...
Sækja um starfAlmennur læknir – Heilsugæslan Efra-Breiðholt Laust er til umsóknar tímabundið starf almenns læknis við Heilsugæsluna Efra-Breiðholti. Um er að ræða...
Sækja um starfSumarafleysingar Kristnesspítali – Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga/hjúkrunarnema við Kristnesspítala. Næsti yfirmaður er Eygló Brynja Björnsdóttir...
Sækja um starfSérfræðingur kvensjúkdóma- og fæðingalæknir Viltu taka þátt í að efla og bæta þjónustu við konur á öllu landinu og leggja...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Heimahjúkrun HH Heimahjúkrun HH leitar eftir hjúkrunarfræðingi í vaktavinnu. Um er að ræða ótímabundið starf á morgun-, kvöld-...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu...
Sækja um starf