Lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri auglýsir lausa 70-100% stöðu hjúkrunarfræðings. Staðan er laus eftir samkomulagi.
Boðið verður upp á skipulagt starfsþróunarprógramm með það að markmiði að efla hæfni og þekkingu á sem flestum sviðum lyflækninga.
Næsti yfirmaður er Þóra Ester Bragadóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild og gefur upp nánari upplýsingar í síma 463-0100 og/eða í tölvupósti [email protected]
Lyflækningadeildin er 23 rúma legudeild. Starfsemi deildarinnar er mjög fjölbreytt og sérgreinar hennar eru margar en þær helstu eru: hjartasjúkdómar, lungnasjúkdómar, krabbameins og líknandi meðferð, meltingarfærasjúkdómar, smitsjúkdómar, taugasjúkdómar og innkirtlasjúkdómar. Þar sem starf deildarinnar er fjölbreytt er breið þekking til staðar hjá starfandi hjúkrunarfræðingum.
Starfsþróunaráætlun nær yfir 10 mánaða tímabil. Markmið með áætluninni er að efla hæfni og þekkingu hjúkrunarfræðinga innan lyflækninga sem og að auka gæði þeirrar þjónustu sem veitt er á deildinni.
Á starfsþróunartímabilinu er unnið undir handleiðslu hjúkrunarfræðinga sem hafa sérþekkingu á ákveðnum sviðum í hjúkrun lyflækninga og er lögð áhersla á að hjúkrunarfræðingurinn öðlist þekkingu á sem flestum sviðum. Má þar nefna úrlestur á taktstrimlum, hjúkrun hjarta- og lungnasjúklinga, meðferð sára, rafræna skráningu, flóknar lyfjagjafir, undirbúningur útskriftar, líknar hjúkrun og líknandi meðferð.
Starfsþróun er tilvalið tækifæri fyrir nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga sem vilja kynnast hjúkrun innan lyflækninga en ekki síður fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja breyta til í starfi og takast á við nýjar áskoranir í fjölbreyttu og krefjandi starfsumhverfi undir leiðsögn.
Tímabilinu er skipt upp í ákveðnar lotur þar sem starfsmaður fær svigrúm og stuðning frá leiðbeinenda við að afla sér þekkingar og rýna í verkferla til þess að stuðla að faglegri þróun. Veittir verða les-/ verkefnadagar ásamt því að starfsmanni verður gefinn kostur á að aðlaga áætlunina að einhverju leiti eftir eigin áhugasviði. Einnig verða dagar þar sem fylgst verður með þjónustu á almennri göngudeild s.s. speglunum, lyfjagjöfum og sáramóttöku.
|
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningu í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum stöðum sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.01.2023
Þóra Ester Bragadóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Hjúkrunarfræðingar – hjúkrunarsvið Nú fjölgum við rýmum á HSS! Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði...
Sækja um starfSumarstörf 2023 – Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar Laus eru til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir sjúkraliða og sjúkraliðanema sumarið 2023. Í boði eru fjölbreytt...
Sækja um starfSérfræðilæknir í öldrunarlækningum Tvær stöður sérfræðilækna í öldrunarlækningum við Landspítala eru lausar til umsókna frá 1. febrúar 2023 eða eftir...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Vopnafjörður – Heilsugæsla – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingar á heilsugæslustöðina...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á taugalækningadeild Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast til starfa á taugalækningadeild í Fossvogi. Í...
Sækja um starfSérfræðilæknir í kvenlækningateymi Landspítala Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í kvenlækningateymi kvenna- og barnaþjónustu Landspítala. Um er að ræða starf...
Sækja um starf