Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á skurðlækningadeild. Um er að ræða vaktavinnu og er staðan laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu starfumhverfi. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Næsti yfirmaður er Hilda Hólm Árnadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur skurðlækningadeildar.
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvröðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum stöðlum sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. regnla nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Hilda Hólm Árnadóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Sumarafleysingar Sjúkrahúsapótek – Lyfjafræðingur/lyfjafræðinemi Vegna sumarafleysinga er laus til umsóknar 50-100% staða lyfjafræðings/lyfjafræðinema við sjúkrahúsapótek Sjúkrahússins á Akureyri. Starfshlutfall er...
Sækja um starfSjúkraliði á skurðlækningadeild Laus er til umsóknar 80-100% staða sjúkraliða á skurðlækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Neskaupstaður – Hjúkrunardeild – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða í sumarafleysingar hjúkrunarfræðing á hjúkrunardeild...
Sækja um starfAðhlynning Nú fjölgum við rýmum á HSS! Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði til að...
Sækja um starfSumarafleysing – Sjúkraliðar og sjúkraliða/hjúkrunarfræðinemar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða og sjúkraliða/hjúkrunarfræðinema í afleysingarstörf á sjúkradeild. Um...
Sækja um starfSumarafleysingar á skurðlækningadeild SAk – Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður sjúkraliða og/eða sjúkraliðanema við skurðlækningadeild Sjúkrahússins á...
Sækja um starf