Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á skurðlækningadeild. Um er að ræða vaktavinnu og er staðan laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu starfumhverfi. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum.
Ef þú hefur áhuga á að prófa hjúkrun á skurðlækningadeild þá er þetta tækifæri fyrir þig
Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Frábært tækifæri á góðum vinnustað þar sem starfsumhverfið er fjölbreytt, spennandi og krefjandi.
Næsti yfirmaður er Hilda Hólm Árnadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur skurðlækningadeildar.
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Hilda Hólm Árnadóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Sumarstarf í ræstingu á heilsugæslustöð HSU Hvolsvelli Vilt þú starfa á framúrskarandi vinnustað í sumar ? Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Rangárþingi, óskar...
Sækja um starfLjósmæður sumarafleysingar – Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir ljósmæðrum í sumarafleysingar. Um er að ræða störf á tímabilinu júní-ágúst....
Sækja um starfStarfsmaður óskast til ræstingarstarfa í sumarafleysingu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestmannaeyjum Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar af starfsmanni til að starfa í sumar...
Sækja um starfAðstoðardeildarstjóri á kvenlækningadeild 21A Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með brennandi áhuga á hjúkrun kvenna, stjórnun, ásamt gæða- og umbótastarfi,...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á taugalækningadeild Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast til starfa á taugalækningadeild í Fossvogi. Í...
Sækja um starfAlmennur læknir – Heilsugæslan Efra-Breiðholt Laust er til umsóknar tímabundið starf almenns læknis við Heilsugæsluna Efra-Breiðholti. Um er að ræða...
Sækja um starf