Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Blóðbankanum við Snorrabraut. Við bjóðum jafn velkominn í okkar góða hóp nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing sem og hjúkrunarfræðing með reynslu. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Rík áhersla er lögð á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.
Um er að ræða dagvinnu með breytilegan vinnutíma og bakvöktum. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti. Í Blóðbankanum starfa um 55 manns, hjúkrunarfræðingar, líffræðingar, lífeindafræðingar, læknar og skrifstofufólk og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið allra starfsmanna að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum ráðningrkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.02.2023
Ína Björg Hjálmarsdóttir
–
[email protected]
–
824 5287
Starfsmaður í umönnun Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla...
Sækja um starfSjúkraliði / sjúkraliðanemi óskast í sumarafleysingar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Vestmannaeyjum sumarið 2023 Sjúkraliði / sjúkraliðanemi óskast í sumarafleysingar á...
Sækja um starfHáskólamenntaður einstaklingur á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda á göngudeild svefntengdra sjúkdóma Ertu háskólamenntaður einstaklingur á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda sem...
Sækja um starfSjúkraliði á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild Hjarta-, lungna og augnskurðdeild 12G á Landspítala við Hringbraut óskar eftir að ráða jákvæða og...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á taugalækningadeild Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast til starfa á taugalækningadeild í Fossvogi. Í...
Sækja um starfSérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum Laus er til umsóknar staða sérfræðings í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Starfshlutfall...
Sækja um starf