Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing á göngudeild húð- og kynsjúkdóma í Fossvogi.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og krefst frumkvæðis og áhuga á teymisvinnu. Á deildinni starfa 14 einstaklingar í samhentum hópi hjúkrunarfræðinga, lækna, ritara og sjúkraliða og er samvinna til fyrirmyndar .Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Starfshlutfall er 80 – 100% og er vinnutími virka daga kl. 8 – 16. Vinnuvika starfsfólks í fullu starfi er nú 36 klukkustundir.
Starfið er laust frá 17. apríl 2023 eða samkvæmt samkomulagi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbriðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.03.2023
Emma Björg Magnúsdóttir
–
[email protected]
Hjúkrunarfræðingur – Kristnesspítali – Starfsþróunarári í boði Laus er til umsóknar 80-100% hjúkrunarfræðings við Kristnesspítala þar sem fara fram endurhæfingar-...
Sækja um starfSumarafleysingar fæðingadeild – Ljósmæður Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsókna 60-100 % stöður ljósmæðra við fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti...
Sækja um starfTalmeinafræðingur óskast á Landspítala Talmeinafræðingur óskast til starfa við talmeinaþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 60% og þarf viðkomandiað geta hafið störf...
Sækja um starfStarfsfólk í umönnun óskast í sumar á hjúkrunarheimili HSU á Selfossi Starfsfólk í umönnun óskast til starfa í sumar á...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar óskast í sumarstöf á hjúkrunarheimili HSU á Selfossi Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar óskast til starfa í sumar á...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar í sumarafleysingar á HSN Siglufirði Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði (HSN) óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall er...
Sækja um starf