Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingu júlí til ágúst á heilsugæslu HSA sem sinnir Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði, ásamt nærsveitum. Starfshlutfall er 70%.
Almenn móttaka á heilsugæslu og heilsuvernd. Almenn móttaka sjúklinga og þátttaka í bakvöktum utan dagvinnu.
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er kostur og/eða reynsla af vinnu á heilsugæslu. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi nauðsynleg.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Guðrún Pétursdóttir
–
[email protected]
Jónína Guðrún Óskarsdóttir
–
[email protected]
Sérfræðilæknir í kvenlækningateymi Landspítala Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í kvenlækningateymi kvenna- og barnaþjónustu Landspítala. Um er að ræða starf...
Sækja um starfAðstoðarmaður við hjúkrun – Fjarðabyggð – Hjúkrunarheimilið Uppsalir – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarfólk við...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSumarafleysingar 2023 – Hjúkrunarfræðingur í Stykkishólmi Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga á hjúkrunar og sjúkradeild...
Sækja um starfFjölmenningarleg hjúkrun – Heilbrigðisskoðun innflytjenda Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í heilbrigðisskoðun innflytjenda í ótímabundið starf. Starfshlutfall er...
Sækja um starfAlmennur læknir – Heilsugæslan Efra-Breiðholt Laust er til umsóknar tímabundið starf almenns læknis við Heilsugæsluna Efra-Breiðholti. Um er að ræða...
Sækja um starf