Við óskum eftir að ráða hjúkrunarstjóra á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. Starfið hentar reynslumeiri hjúkrunarfræðingum og er kjörið fyrir þá sem vilja fjölbreytt viðfangsefni í alhliða hjúkrun og stjórnun.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum. Unnið er að undirbúningi á viðbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili í stað deildarinnar sem nú er.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
Hjúkrunarstjóri er yfirmaður starfsstöðvar Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Patreksfirði og situr í framkvæmdastjórn stofnunarinnar. Hjúkrunarstjóri sér um verkefnisstjórnun og er yfirmaður millistjórnenda á staðnum. Starfið er skemmtileg blanda af klínískri vinnu og stjórnun. Hjúkrunarstjóri tekur bakvaktir á móti öðrum hjúkrunarfræðingum á staðnum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Æskilegt er að störf hefjist 1. maí 2023 eða eftir nánara samkomulagi.
Patreksfjörður er mjög fjölskylduvænn staður, þar eru leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og framhaldsskóladeild ásamt öflugu íþróttastarfi. Börn hafa mikið frelsi og tækifærin til útivistar eru allt í kring.
Margvísleg starfsemi er á svæðinu og næg atvinnutækifæri fyrir maka.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að sex mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.03.2023
Hildur Elísabet Pétursdóttir, Framkvæmdastjóri hjúkrunar
–
[email protected]
–
695 2222
Gylfi Ólafsson, Forstjóri
–
[email protected]
–
693 3916
Sjúkraliði óskast í sumarafleysingu á heilsugæslustöð HSU Laugarási sumarið 2023 Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur á barna- og unglingageðdeild -BUGL Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á Barna- og unglingageðdeild Landspítala. Ráðið verður í störfin eftir...
Sækja um starfSumarstörf 2023 – Fjölbreytt og lífleg störf hjá rekstrarþjónustu Landspítala Finnst þér gaman að þjónusta og vera á hreyfingu? Rekstrarþjónusta...
Sækja um starfBráðalæknir Lausar eru til umsóknar tvær stöður bráðalækna við Sjúkrahúsið á Akureyri. Um er að ræða 60-80% stöðu annars vegar...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 100% framtíðarstarf í fjölbreytt störf hjúkrunar,...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar á gjörgæsludeild Lausar eru til umsóknar tvær 80-100% stöður hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða...
Sækja um starf