
Business Central / Navision sérfræðingur
Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi til að taka þátt í hönnun og útfærslu á viðskiptalausnum fyrir vegferð Össurar yfir í Business Central. Um er að ræða fjölbreytt og metnaðarfull verkefni í framsæknu og spennandi tækniumhverfi. Viðkomandi einstaklingur þarf að búa yfir reynslu á viðskiptakerfum, vera útsjónarsamur og lausnarmiðaður í hugsun.
STARFSSVIÐ
• Þarfagreining og hönnun á viðskiptalausnum
• Þátttaka í alþjóðlegum verkefnum
• Utanumhald og stýring á verktökum og ráðgjöfum
• Samvinna við einingar og starfsstöðvar um allan heim
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólapróf eða reynsla sem nýtist í starfi
• Reynsla af hönnun og þróun hugbúnaðar
• Þekking á Business Central er æskileg
• Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi
• Metnaður og lausnarmiðuð hugsun
• Samskiptahæfni og mjög góð enskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á ossur.wd3.myworkdayjobs.com.