Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða hafnsögumenn, skipstjóra, vélstjóra og hafnarverði í afleysingar sumarið 2023 í hafnarþjónustu.
Starf hafnsögumanns felst í leiðsögu og hafnsögu skipa auk annarra verkefna tengdum hafnarþjónustu við viðskiptavini.
Starf skipstjóra felst í skipstjórn á dráttarbátum Faxaflóahafna auk annarra verkefna tengdum hafnarþjónustu við viðskiptavini.
Starf vélstjóra felst í vélstjórn dráttarbáta, viðhaldi dráttarbáta sem sinna þarf hverju sinni, afgreiðslu rafmagns auk annarra tilfallandi verkefna
tengdum hafnarþjónustu við viðskiptavini.
Starf hafnarvarðar felst í móttöku á skipum, umhirðu hafnarsvæða, afgreiðslu vatns auk annarra tilfallandi verkefna tengdum hafnarþjónustu
við viðskiptavini.
Faxaflóahafnir sf. er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 80 manns og er umráðasvæði hennar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og
Borgarnesi. Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis-og öryggismálum auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir.
Hæfniskröfur hafnsögumanns
• Skipstjórnarréttindi D – skipstjóri á skipum af ótakmarkaðri stærð
• Reynsla af siglingum fraktskipa
• Öryggisnám Slysavarnarskóla sjómanna
• Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
Hæfniskröfur vélstjóra
• Vélstjóraréttindi VF1
• Reynsla af yfirvélstjórn skipa
• Öryggisnám Slysavarnarskóla sjómanna
• Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
Hæfniskröfur skipstjóra
• Skipstjórnarréttindi B – skipstjóri á skipum að 45 metrum
• Þekking og reynsla af skipstjórn á dráttarbát með Azimuth
stjórnbúnaði nauðsynleg
• Öryggisnám Slysavarnarskóla sjómanna
• Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
Hæfniskröfur hafnarvarða
• Gilt ökuskírteini
• Öryggisnám Slysavarnarskóla sjómanna er kostur
• Gild vinnuvélaréttindi er kostur
• Gild vigtarréttindi eru kostur
Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnavernd þá er óskað eftir að umsækjandi geti lagt fram sakavottorð.
Öll kyn eru hvött til að sækja um en fyrirtækið hefur skýr jafnréttismarkmið og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu. Starfsstöð er í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður gisli@faxafloahafnir.is
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en föstudaginn 3. febrúar n.k.
Starfamerkingar: faxaflóahafnir, Hafnsögumaður, skipstjóri, Vélstjóri
UNGBARNALEIKSKÓLI – ALMENN UMSÓKN Ungbarnaleikskóli – Almenn umsókn Upplýsingar um starfið veitir Selma Birna Úlfarsdóttir, ungbarnaleikskólastjóri, selma.b.ulfarsdottir@seltjarnarnes.is í síma 5959-100....
Sækja um starfSeltjarnarnesbær auglýsir starf skjalastjóra laust til umsóknar. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða. Í boði er 70-100%...
Sækja um starfLeitað er eftir framkvæmdastjóra sem leiðir og eflir starfsemi SLF, Æfingastöðvarinnar og Reykjadals sumar- og helgarstaðar fyrir fötluð börn. Framkvæmdastjóri...
Sækja um starf–English below– Spennandi tækifæri í vaxandi fyrirtæki Viltu taka þátt í vexti og uppbyggingu? Hefur þú brennandi áhuga á tækninýjungum?...
Sækja um starfLeikskólinn Austurkór leitar eftir leikskólastjóra. Leikskólinn Austurkór er sex deilda leikskóli í Kórahverfinu í Kópavogi. Skólastarfið einkennist af flæðandi dagskipulagi,...
Sækja um starfNýr kafli hefst í íslenskri ferðaþjónustu þann 1. júlí þegar ný og stórbætt aðstaða opnar í Kerlingarfjöllum. Fjölbreytt gisting, framúrskarandi...
Sækja um starf