Laus er til umsóknar 100% staða næringarfræðings (möguleiki á lægra starfshlutfalli eftir samkomulagi) við Sjúkrahúsið á Akureyri, staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Mikil jákvæð þróun er á starfsumhverfi næringarfræðings við sjúkrahúsið, sem býður upp á þverfræðilega samvinnu og tækifæri til þróunar á sérsviði ásamt mikils fjölbreytileika í starfi.
Næsti yfirmaður er Guðjón Kristjánsson forstöðulæknir Lyflækninga.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2023
Guðjón Kristjánsson
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Hjúkrunarfræðingur – Án staðsetningar – Heilsugæslusvið HSA Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á heilsugæslusviði HSA án staðsetningar....
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Djúpivogur – Heilsugæsla – Afleysing Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í afleysingu við heilsugæslustöð HSA...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á taugalækningadeild Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast til starfa á taugalækningadeild í Fossvogi. Í...
Sækja um starfFramkvæmdastjóri klínískrar þjónustu Sjúkrahúsið á Akureyri auglýsir til umsóknar nýtt starf framkvæmdastjóra klínískrar þjónustu í kjölfar breytinga á skipuriti sjúkrahússins. ...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfKlínískur yfirnæringarfræðingur við Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar 100% staða næringarfræðings (möguleiki á lægra starfshlutfalli eftir samkomulagi) við...
Sækja um starf