Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Fjallabyggð óskar eftir að ráða lækni til starfa. Húsnæði í boði.
Læknar sem starfa hjá HSN eru með aðalstarfsstöð á heilsugæslustöð og sinna móttöku sjúklinga og heilsuvernd ásamt því að sinna vaktþjónustu í héraði skv. vaktaskema hverju sinni. Starfið felur einnig í sér störf á sjúkra- og hjúkrunarsviði. Störfin fela í sér þverfaglega samvinnu innan sem og út fyrir stöðina.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti eða staðfestingu á Íslensku lækningaleyfi. Kostur er að stofnuninni berist staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, meðmælum og viðtölum við umsækjendur.
Almenn heilsugæsluþjónusta er í boði í Fjallabyggð. Starfsstöðvarnar eru á Siglufirði og Ólafsfirði.
Í Fjallabyggð búa um 2.000 manns. Sveitarfélagið varð til við sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar. Í Fjallabyggð eru leikskólar, grunnskóli og framhaldsskóli. Þar er öflugt menningar- og listalíf, fjölmörg gallerí og vinnustofur ásamt söfnum eru á svæðinu.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.04.2023
Valþór Stefánsson, Yfirlæknir
–
[email protected]
–
432 4300
Örn Ragnarsson, Framkvæmdastjóri lækninga
–
[email protected]
–
432 4200
Lyfjafræðingur – Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar 80% staða lyfjafræðings í sjúkrahúsapóteki Sjúkrahússins á Akureyri. Um framtíðarstarf er...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Djúpivogur/Breiðdalsvík – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingu júlí til ágúst á heilsugæslu...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur / hjúkrunarnemi óskast í sumarafleysingar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Vestmannaeyjum sumarið 2023 Hjúkrunarfræðingur / hjúkrunarnemi óskast í sumarafleysingar á...
Sækja um starfSumarafleysinga við umönnun aldraðra á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir Vestmannaeyjum óskar eftir starfsfólki til...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing á göngudeild húð- og kynsjúkdóma í...
Sækja um starfLæknir – vera á skrá hjá HSU Hér geta læknar með starfsleyfi og læknanemar skráð almenna starfsumsókn Umsóknir hverfa eftir...
Sækja um starf