Fjársýslan leitar að öflugum sérfræðingi á mannauðs- og launasvið. Framundan eru spennandi verkefni er tengjast launakerfi ríkisins og mun viðkomandi sinna fjölbreyttum verkefnum allt frá móttöku gagna til úrvinnslu fullunninna launagagna, greininga og stafrænnar þróunar. Leitað er eftir töluglöggum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni með metnaðarfullum hópi samstarfsfólks sem leggur áherslu á fagleg vinnubrögð og framúrskarandi þjónustu. Á mannauðs- og launasviði starfar hópur sérfræðinga við launavinnslu, launakeyrslu og mannauðsráðgjöf til ríkisaðila
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála. Stofnunin veitir ríkisaðilum fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði fjármála og mannauðsmála. Fjársýslan leggur áherslu á að skapa virði fyrir viðskiptavini og greiða leið fyrir bætta þjónustu ríkisins. Upplýsingar um starfsemi Fjársýslunnar má finna á https://island.is/s/fjarsyslan. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Helga Jóhannesdóttir, Forstöðumaður
–
[email protected]
–
5457500
Pétur Ólafur Einarsson, Mannauðsstjóri
–
[email protected]
–
5457500
Eftirlitsmaður á umsjónardeild Vestursvæðis Vegagerðin auglýsir eftir eftirlitsmanni með nýframkvæmdum og viðhaldi vega. Um er að ræða fullt starf á umsjónardeild...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSérfræðingur í skipatæknideild Samgöngustofa óskar eftir að ráða rafmagns sérfræðing á skipatæknideild. Helstu verkefni og ábyrgð Starfið felst í yfirferð...
Sækja um starfMatvælaráðuneytið auglýsir starf sérfræðings á skrifstofu landbúnaðar. Í nýju matvælaráðuneyti, MAR, mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og...
Sækja um starfSérfræðingur í milliverðlagningu hjá Skattinum Skatturinn leitar að öflugum liðsauka til starfa á starfsstöð Skattsins í Reykjavík og til að...
Sækja um starfSérfræðingur í upplýsingatækni Veðurstofa Íslands leitar eftir drífandi og framsýnum einstaklingi í stöðu sérfræðings í upplýsingatækni með haldgóða þekkingu og...
Sækja um starf