Laust er til umsóknar fullt starf lektors í almennri hjúkrunarfræði, með áherslu á skurðhjúkrun, við Hjúkrunarfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
Almenn hjúkrun miðar að því að veita sjúklingum heilsteypta umönnun sem byggir á vísindum og gagnreyndri þekkingu. Almennar hjúkrunarþarfir sjúklinga eru margþættar og það getur skipt sköpum fyrir árangur meðferðar sjúklings hvernig þeim er mætt. Krafa um þekkingu á áhrifum flókinnar hjúkrunarmeðferða á heilsu, vellíðan og virkni sjúklinga er vaxandi. Lektorinn mun m.a. koma að kennslu í hjúkrun skurðsjúklinga með áherslu á aldraða og næringu.
Leitað er að öflugum einstaklingi með góða þekkingu á almennri hjúkrun auk þekkingar á hjúkrun skurðsjúklinga til að taka þátt í uppbyggingu kennslu og rannsókna í hjúkrunarfræði við deildina.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunarfræðideildar.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi, enda verði störfum nefndar sem um málið fjalla þá lokið.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Heilbrigðisvísindasvið er eitt af fimm fræðasviðum Háskóla Íslands. Innan sviðsins eru sex deildir; Hjúkrunarfræðideild, Lyfjafræðideild, Læknadeild, Matvæla- og næringarfræðideild, Sálfræðideild og Tannlæknadeild. Starfsmenn sviðsins eru um 300 og nemendur um 2200.
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands og eini skólinn hérlendis sem er á báðum virtustu matslistunum yfir bestu háskóla heims, Times Higher Education World University Rankings og Shanghai Ranking.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2022
Helga Bragadóttir, forseti Hjúkrunarfræðideildar
–
[email protected]
Lektor í tannsmíði, námsbrautarstjóri námsbrautar í tannsmíði við Tannlæknadeild Laust er til umsóknar 100% starf lektors í tannsmíði við námsbraut...
Sækja um starfLektor í augnlækningsfræði – Heilbrigðisvísindasvið Laust er til umsóknar 25% starf lektors í augnlæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Helstu verkefni...
Sækja um starfDósent í augnlækningsfræði – Heilbrigðisvísindasvið Laust er til umsóknar 25% starf dósents í augnlæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Helstu verkefni...
Sækja um starfLektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stærðfræði og stærðfræðimenntun. Um er að ræða...
Sækja um starfLektor í heimilislækningum Laust er til umsóknar 25% starf lektors í heimilislækningum á fræðasviði heimilislæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Helstu...
Sækja um starfLektor í íslensku sem öðru máli Laust er til umsóknar fullt starf lektors í íslensku sem öðru máli. Um er...
Sækja um starf