Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stærðfræði og stærðfræðimenntun. Um er að ræða sameiginlegt starf við Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Starfið tilheyrir Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði og Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Horft verður til þess að ráðningin falli sem best að aðstæðum og þörfum sviðanna.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2022
Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, sviðsforseti Menntavísindasviðs
–
[email protected]
–
525 5965
Sigurður M Garðarsson, sviðsforseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs
–
[email protected]
–
525 4659
Enskukennari – Menntaskólinn við Sund Menntaskólinn við Sund auglýsir eftir kennara í 40% starf við kennslu í ensku skólaárið 2022...
Sækja um starfLektor í almennri hjúkrunarfræði með áherslu á hjúkrun aðgerðasjúklinga Laust er til umsóknar fullt starf lektors í almennri hjúkrunarfræði, með...
Sækja um starfLektor í heimilislækningum Laust er til umsóknar 25% starf lektors í heimilislækningum á fræðasviði heimilislæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Helstu...
Sækja um starfLektor í almennri hjúkrunarfræði með áherslu á nýbura Laust er til umsóknar 50% starf lektors í almennri hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild...
Sækja um starfRannsóknamaður í tengslum við vísindarannsókn – Heilbrigðisvísindasvið Laust er til umsóknar starf rannsóknamanns í tengslum við Evrópurannsókn um lungu og heilsu...
Sækja um starfLektor í augnlæknisfræði – Heilbrigðisvísindasvið Laust er til umsóknar 25% starf lektors í augnlæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Helstu verkefni...
Sækja um starf