Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir ljósmóður í 80% ótímabundið starf. Starfið felur í sér mæðravernd og ung- og smábarnavernd. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánari samkomulagi.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, ljósmæðrum, félagsráðgjafa, sjúkraliða, sjúkraþjálfara, klínískum lyfjafræðingi og riturum. Heilsugæslan Efra-Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Starfssviðið er aðallega mæðravernd, ung- og smábarnavernd og leghálsskimanir.
Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Vildís Bergþórsdóttir
–
[email protected]
–
821-2160
Hjúkrunarfræðingar í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar á hjúkrunar- og sjúkrasviði....
Sækja um starfSumarafleysing í sjúkraflutningum/húsumsjón á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi óskar eftir aðila í sjúkraflutinga/húsumsjón í sumarafleysingar. Ráðningartími frá 1. júní...
Sækja um starfSumarstörf 2023 – Almenn störf í þvottahúsi og vöruhúsi Við leitum eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum til starfa í þvottahús...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Heilsugæslan Efra-Breiðholti Heilsugæslan Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf...
Sækja um starfSérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum Laus er til umsóknar staða sérfræðings í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Starfshlutfall...
Sækja um starfSjúkraliði óskast í sumarafleysingu við heimahjúkrun á heilsugæsluna á Höfn í Hornafirði sumarið 2023 Vilt þú starfa á framúrskarandi vinnustað...
Sækja um starf