Laus eru til umsóknar störf ljósmæðra á fæðingarvakt Landspítala. Á deildinni er veitt þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu auk þjónustu við konur með áhættuþætti sem þurfa sérhæft eftirlit í fæðingu.
Á deildinni starfa um 80 manns og er fagmennska og teymisvinna höfð að leiðarljósi. Um er að ræða störf í vaktavinnu og er starfshlutfallið 40-100%. Ráðið verður í störfin eftir samkomulagi og möguleiki á starfi yfir sumartímann eingöngu. Góð aðlögun með reyndum ljósmæðrum í boði.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur enn orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ljósmóðir
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.04.2023
Birna Gerður Jónsdóttir, Yfirljósmóðir
–
[email protected]
–
543 3296
Sérfræðilæknir á sýkla- og veirufræðideild Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis með sérhæfingu í sýkla- og/eða veirufræði. Æskilegt starfshlutfall er...
Sækja um starfSérfræðilæknir í almennum lyflækningum Landspítali auglýsir eftir öflugum sérfræðilæknum í almennum lyflækningum til að taka þátt í og leiða áframhaldandi...
Sækja um starfMannauðsstjóri Rekstrar- og mannauðssvið auglýsir eftir öflugum mannauðsstjóra. Landspítali auglýsir eftir öflugum einstaklingi með mikla reynslu af mannauðsmálum, í starf...
Sækja um starfSumarafleysingar – læknar/læknanemar Sumarafleysingar Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða lækna og læknanema í sumarafleysingastörf, um er að ræða tímabundið...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar á heilsugæslu – Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu? Framundan er mikil uppbygging...
Sækja um starfHeilbrigðisgagnafræðingur á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing í 80% starf. Ráðningartími er frá...
Sækja um starf