Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í afleysingastöðu á Heilsugæsluna á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 40% og veitist staðan frá 1. mars eða samkvæmt samkomulagi og til 31. maí 2024.
Starfið felur meðal annars í sér almenna afgreiðslu, uppgjör, símsvörun og bókanir. Upplýsingagjöf og aðstoð við skjólstæðinga auk samvinnu og aðstoðar við aðrar deildir innan stofnunarinnar.
Gerð er krafa um stúdentspróf, þekkingu og vald á að vinna upplýsingar á tölvutæku formi, gild almenn ökuréttindi, kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli, tölulæsi og færni í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, hlýtt viðmót, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta skilyrði.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 40%
Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2023
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir
–
[email protected]
–
470-3029
Ræstingar í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli Umhverfisstofnun leitar að einstaklingi í ræstingar í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Þjóðgarðurinn rekur tvær gestastofur, á Malarrifi og...
Sækja um starfDeildarstjóri heilbrigðisgagnadeildar HVE Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra heilbrigðisupplýsinga HVE á Akranesi. Deildarstjóri er yfirmaður heilbrigðisgagnafræðinga á...
Sækja um starfSumarafleysing: Vörulager Rekstrardeild óskar eftir að ráða starfsmann til sumarafleysinga á vörulager Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða 100%...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfViltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku,...
Sækja um starfUmsjónarmaður fasteigna Umsóknarfrestur framlengdur. Rekstur fasteigna, framkvæmda- og tæknisviðs Háskóla Íslands óskar eftir að ráða umsjónarmann fasteigna í fullt starf....
Sækja um starf