Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu á heilsugæsluna á Vopnafirði. Hluti starfs felst í ræstingu á starfsstöð. Starfshlutfall er 100%.
Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku skjólstæðinga heilsugæslunnar, einng þrif á heilsugæslustöðinni.
Krafist er tölvukunnáttu og ríkrar þjónustulundar. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin og kunnátta í ensku og fleiri tungumálum æskileg.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir
–
[email protected]
–
470-3029
Þórarna Gró Friðjónsdóttir
–
[email protected]
–
470-3053
Sumarafleysing – starf í býtibúr á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (Víðihlíð) óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingu...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSumarstörf 2023- Störf í öryggisþjónustu, þjónustuveri og móttökum Rekstrarþjónusta óskar eftir starfsfólki í sumarvinnu í öryggisvörslu, þjónustuver og móttökur. Starfið...
Sækja um starfStarfsmaður á vörulager Laus er til umsóknar staða starfsmanns á vörulager á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um er að ræða 100%...
Sækja um starfSumarstörf í fangelsum Fangelsismálastofnun leitar eftir áhugasömu fólki til starfa við fangavörslu í sumar. Í boði eru sumarstörf í fjórum...
Sækja um starfSumarafleysing – Matartæknir Vegna sumarafleysinga er laus til umsóknar staða matartæknis í eldhúsi Sjúkrahússins á Akureyri. Næsti yfirmaður er Haukur...
Sækja um starf