Áhugasamur og metnaðarfullur ráðgjafi/stuðningsfulltrúi óskast til starfa á Laugarásnum meðferðargeðdeild í geðþjónustu Landspítala. Laugarásinn er sérhæfð deild fyrir ungt fólk með geðrofssjúkdóm á byrjunarstigi. Þar er unnið fjölbreytt og sérhæft starf í snemmíhlutun geðrofssjúkdóma fyrir einstaklinga á aldrinum 18-35 ára. Á deildinni eru 8 sólarhringspláss en að stærstum hluta er starfsemi deildarinnar dagdeild þar sem um 100 einstaklingar sækja þjónustu.
Starfsemi Laugarássins er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við aðstandendur. Á deildinni starfa um 40 manns og einkennist samstarfið af þverfaglegri nálgun, krefjandi greiningarvinnu og góðum starfsanda. Á deildinni er sérstök áhersla lögð á starfsþróun, m.a. fær starfsfólk þjálfun og handleiðslu í áhugahvetjandi samtalstækni og grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar. Einnig er lagt mikið upp úr fræðslu og handleiðslu starfsmanna. Mikið er lagt upp úr virku umbótastarfi og lögð er áhersla á virka þátttöku starfsmanna þegar kemur að því að þróa og bæta þjónustuna.
Um er að ræða fullt starf og er unnið er á breytilegum vöktum. Með fullri styttingu vinnuvikunnar miðar 100% starf við 36 tíma vinnuviku. Starfið er laust strax eða eftir nánara samkomulagi. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Söndru Sif deildarstjóra eða Úllu aðstoðardeildarstjóra.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ráðgjafi, stuðningsfulltrúi, teymisvinna
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Sandra Sif Gunnarsdóttir
–
[email protected]
–
825 5846
Úlla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
824 8160
Félagsliði í heimahjúkrun á Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir félagsliðum í gefandi störf við heimahjúkrun. Í boði er...
Sækja um starfSérfræðingur í heimilislækningum – Heilsugæslan Mosfellsumdæmi Heilsugæslan Mosfellsumdæmi leitar að sérfræðingi í heimilislækningum í ótímabundið starf. Starfshlutfall er 100% eða...
Sækja um starfSérnámslæknar í heimilislækningum Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á norðanverðum Vestfjörðum auglýsir lausa til umsóknar sérnámsstöðu í heimilislækningum. Um er að ræða 100%...
Sækja um starfSjúkraþjálfari – Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að sinna hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um...
Sækja um starfYfirlæknir – Upplýsingamiðstöð Laust er til umsóknar 20% tímabundið starf yfirlæknis til eins árs við Upplýsingamiðstöð HH. Æskilegt er að...
Sækja um starfSérfræðistarf hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sérfræðingi hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana til að m.a. sjá um rekstur vél- og...
Sækja um starf