Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að sálfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að sinna vanda barna og unglinga. Um er að ræða 100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Við leitum að sálfræðingi sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu, sálfræðingi sem leggur metnað í að ná árangri í starfi. HH Seltjarnarnesi og Vesturbæ setur áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu. Á stöðinni starfa heimilislæknar, sálfræðingur, hjúkrunarfræðingar ásamt fleiri heilbrigðisstéttum og riturum. Starfsumhverfið er gefandi og gefur góðan sveigjanleika til faglegrar þróunar. Ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið þá hvetjum við þig til að sækja um starfið.
Geðheilbrigðismál eru í mikilli framþróun innan heilusgæslunnar þar sem er veitt fyrstu línu þjónusta. Heilsugæslan á jafnframt að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Emilía Petra Jóhannsdóttir
–
[email protected]
–
513-6100
Hjúkrunarfræðingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Hefur þú áhuga á að starfa við hjúkrun sjúklinga með blóðsjúkdóma eða krabbamein og taka...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur/nemi – Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarfræðinema í sumarafleysingar...
Sækja um starfYfirlæknir mæðraverndar – Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og ÞÍH Laust er til umsóknar starf yfirlæknis mæðraverndar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, HH og Þróunarmiðstöð...
Sækja um starfSjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum óskar eftir starfsmönnum í sumarafleysingu í aðhlynningu Sjúkradeildin á HSU í Vestmannaeyjum óskar eftir að ráða...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar/Nurses Leitum að hjúkrunarfræðingum á nær allar deildir sjúkrahússins. Starfshlutfall er samkomulag, um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vötkum...
Sækja um starfGeislafræðingur óskast í sumarafleysingu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að geislafræðingi til starfa í sumarafleysingu við stofnunina. Um...
Sækja um starf