Hefur þú brennandi áhuga á tölum og færslu bókhalds?
Við leitum að nákvæmum og talnaglöggum einstaklingi í bókhaldsdeild Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Deildin heyrir undir sviði fjármála og rekstrar sem staðsett er í Álfabakka 16.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí n.k. eða eftir nánari samkomulagi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Guðfinna Helgadóttir
–
[email protected]
–
513-5000
Óskum eftir að ráða starfsmann til að starfa á skrifstofu okkar á Selfossi við sölu, tilboðsgerð, ferðaskipulagningu o.fl. Hæfniskröfur:...
Sækja um starfLyfjafræðingur í deild Lyfja og meðferðarhjálpartækja Sjúkratryggingar Íslands auglýsa krefjandi og skemmtilegt starf lyfjafræðings í einingu Lyfjamála í deild Lyfja og...
Sækja um starfHeilbrigðisgagnafræðingur – Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu? Framundan er mikil uppbygging á HSS...
Sækja um starfStarf gjaldkera laust á innheimtu- og skráasviði Skattsins Viltu slást í hóp einstakra gjaldkera á innheimtu- og skráasviði Skattsins? Við...
Sækja um starfSkrifstofustarf/heilbrigðisritari á blóð- og krabbameinslækningadeild Laust er til umsóknar skrifstofustarf á blóð- og krabbameinslækningadeild við Hringbraut. Á deildinni starfar 120...
Sækja um starfMóttökuritari sumarafleysing á heilsugæslustöð HSU Laugarási Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingu í starf móttökuritara við heilsugæslustöð...
Sækja um starf