FSRE óskar eftir öflugum sérfræðingi til starfa við fjárhagsgreiningar, áætlanagerð og fleira tengt þróun og rekstri á eignasafni stofnunarinnar. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í þverfaglegu teymi innan nýstofnaðs eignastýringarsviðs stofnunarinnar.
Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Ábyrgð og helstu verkefni
Menntunar og hæfniskröfur
Um Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir:
Framkvæmdasýslan og Ríkiseignir sameinuðu nýverið krafta sína undir heitinu Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE). Sameinuð stofnun þróar og rekur aðstöðu á vegum ráðuneyta, stofnana og annarra ríkisaðila og gegnir með því mikilvægu hlutverki í þjónustu við borgarana. Við erum í dag rúmlega 60 starfsmenn með fjölbreyttan bakgrunn og byggjum saman á gildunum: FRAMSÝNI, SAMVINNA OG FAGMENNSKA. Eignasafn FSRE samanstendur af 530 þúsund m² húsnæðis í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Um þessar mundir vinnum við að um 130 þróunarverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins; s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði. Framundan eru spennandi tímar í þróun sameinaðrar stofnunar og lifandi vinnustaðar. Við leitum því að jákvæðu og drífandi fólki sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í vegferðinni með okkur. Nánari upplýsingar er að finna inn á www.fsre.is.
Umsóknarfrestur er til og með 22.08 2022. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um störfin. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
Starfamerkingar: fasteignaþróun, Sérfræðingur
Matvælaráðuneytið auglýsir starf sérfræðings á skrifstofu landbúnaðar. Í nýju matvælaráðuneyti, MAR, mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og...
Sækja um starfEftirlitsdýralæknir í Norðausturumdæmi Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Norðausturumdæmi með starfsstöð á Akureyri. Möguleiki er...
Sækja um starfSérfræðingur í geðlækningum Laus er til umsóknar 50-100% staða sérfræðings í geðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri , staðan er laus...
Sækja um starfSérfræðingur á sviði gagnastrauma og gæðaeftirlits Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi á sviði gagnastrauma og gæðaeftirlits, sem kemur til starfa...
Sækja um starfÍ nýju matvælaráðuneyti mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og skógræktar. Áhersla er lögð á loftslagsmál, aðgengi að hollum mat...
Sækja um starfSérfræðingur – viðskiptakerfi ESB í iðnaði Umhverfisstofnun annast viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir fyrir Íslands hönd. Rekstraraðilum í staðbundnum iðnaði er...
Sækja um starf