Laust er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Efra-Breiðholti. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. maí eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða tímabundið áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, ljósmæðrum, hreyfistjóra, félagsráðgjafa, sjúkraliða, klínískum lyfjafræðingi og riturum. Heilsugæslan Efra Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. í almennri læknismóttöku, heilsuvernd, bráðaþjónustu á daginn og síðdegisvakt. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Nanna Sigríður Kristinsdóttir
–
[email protected]
–
513-5300
Sjúkraliði – vera á skrá Hér geta sjúkraliðar með starfsleyfi skráð almenna starfsumsókn. Almennum starfsumsóknum er ekki svarað sérstaklega. Þær...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku Landspítala Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á bráðamóttöku Landspítala. Í boði er spennandi, krefjandi og líflegt starfsumhverfi, góður...
Sækja um starfFjölmenningarleg hjúkrun – Heilbrigðisskoðun innflytjenda Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í heilbrigðisskoðun innflytjenda í ótímabundið starf. Starfshlutfall er...
Sækja um starfLjósmæður Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða ljósmæður til starfa á Ísafirði. Um er að ræða 60% – 80% starf...
Sækja um starfStarfsmaður í eldhúsi Lausar eru til umsóknar tvær 80-100% stöður starfsmanna í eldhúsi við Sjúkrahúsið á Akureyri. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna. ...
Sækja um starfTímabundin staða í heilsuvernd grunnskólabarna á HSN Akureyri Laus er til umsóknar 40-80% afleysingastaða skólahjúkrunarfræðings hjá HSN Akureyri. Æskilegt er...
Sækja um starf