Laust er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Garðabæ. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. apríl eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi.
Heilsugæslan er fjölskylduvænn vinnustaður og góð samvinna er á milli starfstétta. Á stöðinni starfa sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, ljósmæðrum, sjúkraþjálfara og riturum.
Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. í almennri læknismóttöku, heilsuvernd, bráðaþjónustu á daginn og síðdegisvakt. Hann er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands heilsugæslulæknar hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Ásmundur Jónasson
–
[email protected]
–
513-5500
Sjúkraliði – Fjarðabyggð – Heimahjúkrun – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða í sumarafleysingar í heimahjúkrun...
Sækja um starfLæknir Ráðgjafar- og greiningarstöð leitar að öflugum lækni til starfa sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum...
Sækja um starfLjósmæður Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða ljósmæður til starfa á Ísafirði. Um er að ræða 60% – 80% starf...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur óskast á göngudeild bæklunarskurðlækninga Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á göngudeild bæklunarskurðlækninga í Fossvogi. Deildin er göngudeild (fyrrum endurkomudeild BMT)...
Sækja um starfSérfræðilæknir á sýkla- og veirufræðideild Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis með sérhæfingu í sýkla- og/eða veirufræði. Æskilegt starfshlutfall er...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur/ teymisstjóri- Transteymi Landspítala Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að taka þátt í að efla og þróa...
Sækja um starf