Laust er til umsóknar starf sérfræðings í lífefnaerfðafræði við erfða-sameindalæknisfræðideild (ESD) á klínískri rannsóknaþjónustu Landspítala.
Á ESD fer fram fjölbreytt starfsemi. ESD veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu og hún er eina deildin sinnar tegundir á Íslandi. Deildin rekur sérhæfðar rannsóknarstofur til að greina erfðasjúkdóma, meta erfðaáhættu og í fósturskimun og nýburaskimun. Notaðar eru margvíslegar rannsóknategundir í lífefnaerfðafræði, sameindaerfðafræði, litningarannsóknum og erfðamengisrannsóknum.
Á ESD er göngudeild og ráðgjafareining. Starfið er tengt lífefnaerfðarannsóknaeiningu. Á þeirri rannsóknarstofu eru greindir arfgengir efnaskiptasjúkdómar, fylgt eftir meðferð þeirra og nýburaskimun.
Á ESD fer fram öflug kennsla, þjálfun og vísindarannsóknir í samvinnu við ýmsa aðila innan og utan spítalans. Deildin er í formlegum tengslum við lífefna- og sameindalíffræðasvið læknadeildar Háskóla Íslands og í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.
Vinnuandinn á deildinni einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Unnið er í öflugum þverfaglegum teymum innan og utan deildar og í nánu samstarfi við aðrar starfsemi spítalans.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lífefnaerfðafræðingur
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023
Jón Jóhannes Jónsson
–
[email protected]
–
824 5917
Sjúkraliðar/nemar í sumarafleysingar í heimahjúkrun á Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir sjúkraliðum/nemum í sumarafleysingar í heimahjúkrun. Ráðningartímabil er...
Sækja um starfLæknanemar í sumarafleysingar á HSN Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri auglýsir eftir læknanemum í sumarafleysingar. Ráðningartími er frá 1. júní...
Sækja um starfSumarafleysing – ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Sumarafleysing – ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnejsa Við óskum eftir að ráða ljósmóður í sumarafleysingar...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar í sumarafleysingar á HSN Siglufirði Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði (HSN) óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall er...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur óskast til sumarafleysinga í fjölbreytt og spennandi starf á Heilsugæslu HSU í Vík Vilt þú starfa á framúrskarandi vinnustað...
Sækja um starfSjúkraflutningamaður óskast í sumarstarf á Þingvöllum Sjúkraflutningamaður óskast í sumarstarf í öryggis- og viðbragsðsteymi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Þingvöllum. Helstu...
Sækja um starf