Laus er til umsóknar 100% staða sérfræðings í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hafi búsetu á Akureyri.
Næsti yfirmaður er Guðjón Kristjánsson forstöðulæknir lyflækninga.
Starfinu fylgir hefðbundin vinna í lyflækningum á legudeild og göngudeild og ráðgjöf á öðrum einingum sjúkrahússins, ásamt bakvöktum. Einnig fylgir starfinu þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun ungra lækna.
Möguleiki er á rannsóknarvinnu.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.
Við ráðningu í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum stöðlum sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Guðjón Kristjánsson
–
[email protected]
–
463-0100
Ragnheiður Halldórsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Stjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfLæknir á Húsavík Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir að ráða lækni til starfa. Húsnæði í boði. Æskilegt er að...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Heilsugæslan Efra-Breiðholti Heilsugæslan Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf...
Sækja um starfSumarafleysingar Kristnesspítali – Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga/hjúkrunarnema við Kristnesspítala. Næsti yfirmaður er Eygló Brynja Björnsdóttir...
Sækja um starfÞroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild – BUGL Þroskaþjálfi óskast til starfa á Barna- og unglingageðdeild Landspítala. Um er að ræða...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur óskast á taugalækningadeild Við sækjumst eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til að starfa með okkur á taugalækningadeild í Fossvogi. Við bjóðum...
Sækja um starf