
Sérfræðingur í öryggismálum
Össur leitar að jákvæðum, metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi með brennandi áhuga á öryggismálum til að vinna í umhverfis- og öryggisdeild fyrirtækisins. Starfið felst í því að vinna að stöðugum úrbótum á öryggiskerfi Össurar í samstarfi við aðrar deildir fyrirtæksins á Íslandi, auk þátttöku í úrbótaverkefnum í samstarfi við aðrar starfsstöðvar Össurar um allan heim.
Umhverfis- og öryggisdeildin ber ábyrgð á samræmingu umhverfis- og öryggismála á starfsstöðvum Össurar um allan heim.
STARFSSVIÐ
- Áhættumat starfa
- Slysaskráningar
- Rýmingaræfingar
- Eldvarnir, brunaöryggi og -úttektir
- Umsjón með gagnabanka fyrir öryggisblöð
- Þátttaka í innri og ytri úttektum
- Þjálfun starfsfólks
- Stöðugar úrbætur á öryggiskerfi Össurar
HÆFNISKRÖFUR
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla á öryggismálum fyrirtækja
- Þekking og reynsla á alþjóðlegum öryggisstöðlum er kostur
- Reynsla í verkefnastjórnun er kostur
- Mjög góð enskukunnátta, bæði skrifleg og munnleg
- Mjög góð hæfni í að koma fram
- Mjög góð hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópum
Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á ossur.wd3.myworkdayjobs.com.