
Sérfræðingur í skipulagsgerð og staðarmótun – Skipulagsstofnun
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við fjölbreytt verkefni í skipulagsmálum með áherslu á deiliskipulag og staðarmótun. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt viðfangsefni og getu til að leysa verkefni bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
Helstu verkefni
- Ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsgerð sveitarfélaga, sérstaklega varðandi gerð og afgreiðslu deiliskipulags.
- Ýmis verkefni við stefnumótun, leiðbeiningar og miðlun um skipulagsmál, sérstaklega tengt gerð deiliskipulags og staðarmótun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf sem nýtist í starfi, svo sem á sviði borgarhönnunar, arkitektúrs, landslagsarkitektúrs eða skipulagsfræði.
- Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi, svo sem af skipulagsgerð og staðarmótun.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu.
- Hæfni til að hagnýta þekkingu og reynslu í ólíkum verkefnum.
- Frumkvæði, skapandi hugsun og metnaður til að ná árangri.
- Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
- Góð enskukunnátta.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Um 100% starf er að ræða og æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir frá ráðningu.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 7. apríl 2021.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Hildur Jóna Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Merkja við auglýsingu
Þú þarft að skrá þig inn til að vista þessa auglýsingu
Sækja um starf
Til að sækja um þetta starf, vinsamlega farðu á recruitcrm.io.