FSRE óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing til starfa við þróun á eignasafni ríkisins. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í þverfaglegu teymi innan nýstofnaðs eignastýringarsviðs stofnunarinnar. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Ábyrgð og helstu verkefni
Menntunar og hæfniskröfur
Um Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir:
Framkvæmdasýslan og Ríkiseignir sameinuðu nýverið krafta sína undir heitinu Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE). Sameinuð stofnun þróar og rekur aðstöðu á vegum ráðuneyta, stofnana og annarra ríkisaðila og gegnir með því mikilvægu hlutverki í þjónustu við borgarana. Við erum í dag rúmlega 60 starfsmenn með fjölbreyttan bakgrunn og byggjum saman á gildunum: FRAMSÝNI, SAMVINNA OG FAGMENNSKA. Eignasafn FSRE samanstendur af 530 þúsund m² húsnæðis í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Um þessar mundir vinnum við að um 130 þróunarverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins; s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði. Framundan eru spennandi tímar í þróun sameinaðrar stofnunar og lifandi vinnustaðar. Við leitum því að jákvæðu og drífandi fólki sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í vegferðinni með okkur. Nánari upplýsingar er að finna inn á www.fsre.is.
Umsóknarfrestur er til og með 22.08 2022. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um störfin. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
Starfamerkingar: Sérfræðingur
Eftirlitsdýralæknir í Norðausturumdæmi Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Norðausturumdæmi með starfsstöð á Akureyri. Möguleiki er...
Sækja um starfSérfræðingur á sviði gagnastrauma og gæðaeftirlits Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi á sviði gagnastrauma og gæðaeftirlits, sem kemur til starfa...
Sækja um starfSérfræðingur – mengunareftirlit Umhverfisstofnun hefur eftirlit með margvíslegum atvinnurekstri sem getur haft neikvæð áhrif á umhverfið. Eftirlit með atvinnurekstri felst...
Sækja um starfSálfræðingur/félagsráðgjafi í MST Barna- og fjölskyldustofa leitar að tveimur MST meðferðaraðilum í 100% stöður. MST er gagnreynd meðferð fyrir fjölskyldur...
Sækja um starfAðstoðarsaksóknari við embætti ríkissaksóknara Laus er til umsóknar staða aðstoðarsaksóknara við embætti ríkissaksóknara. Helstu verkefni og ábyrgð Meginverkefni starfsmannsins eru:...
Sækja um starfVerkefnastjóri á framkvæmdadeild Vegagerðin auglýsir eftir tveimur öflugum einstaklingum til að sinna verkefnastjórn stórra verka á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar í Garðabæ.Um...
Sækja um starf