Laust er til umsóknar starf sérfræðings á hönnunardeild Vegagerðarinnar í Garðabæ.
Vegagerðin vinnur að þróun, skipulagi, hönnun og framkvæmd samgöngumannvirkja fyrir fjölbreytta ferðamáta. Framundan eru umfangsmikil og spennandi verkefni við undirbúning Borgarlínu sem tilheyrir Samgöngusáttmála.
Vegagerðin leitar að öflugum einstaklingi sem mun sinna hönnunarstjórn Borgarlínu ásamt teymi verkefnastofu Borgarlínu.
Meðal verkefna er hönnunarstjórn með teymi alþjóðlegra ráðgjafa, taka þátt í gerð verðfyrirspurnar- og útboðsgagna, kostnaðaráætlana, rýni hönnunar og fjölbreyttum umbótaverkefnum á sviði hönnunar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdarstofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð og telur að nýtist í starfi.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Vakin er athygli á því að persónuupplýsingum um umsækjendur kann að verða miðlað til ráðningarstofu sem kæmi að vinnu við ráðningarferlið. Öll vinnsla og meðferð persónuupplýsinga í ráðningarferlinu fer fram í samræmi við persónuverndarstefnu sem birt er á heimasíðu Vegagerðarinnar, sjá hér https://www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/markmid-og-stefnur/personuverndarstefna/
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023
Margrét Silja Þorkelsdóttir, forstöðumaður hönnunardeildar
–
[email protected]
–
522 -1830
Sérfræðingur í geðlækningum Laus er til umsóknar 50-100% staða sérfræðings í geðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri , staðan er laus...
Sækja um starfSérfræðingur (iðjuþjálfi/sjúkraþjálfari) í Heilbrigðisþjónustudeild Sjúkratryggingar Íslands auglýsa laust til umsóknar starf sérfræðings í Heilbrigðisþjónustudeild. Starfið er í skemmtilegri og samheldinni...
Sækja um starfSálfræðingur barna og unglinga – Heilsugæslan Hlíðum Laust er til umsóknar tímabundið starf sálfræðings fyrir börn og unglinga við Heilsugæsluna...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfÍ nýju matvælaráðuneyti mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og skógræktar. Áhersla er lögð á loftslagsmál, aðgengi að hollum mat...
Sækja um starfMatvælaráðuneytið auglýsir starf sérfræðings á skrifstofu landbúnaðar. Í nýju matvælaráðuneyti, MAR, mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og...
Sækja um starf